Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar kom til hafnar í Reykjavík í dag. Formleg afhending skipsins verður í Vestmanneyjum laugardaginn 1. október þar sem skipið verður með heimahöfn. Björgunarskipið mun fá nafnið Þór.
Þetta er fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur gengið frá kaupum á en um er að ræða stærsta fjárfestingaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar til þessa. 142,5 milljóna króna styrkur frá Sjóvá fer í að smíða fyrstu þrjú björgunarskipin en til stendur að endurnýja öll 13 björgunarskip félagsins.
Með skipunum styttist viðbragðstími Landsbjargar á sjó um helming í flestum tilfellum. Þannig verður bylting í viðbragðstíma og aðbúnaði fyrir áhafnir og skjólstæðinga. Skipin skipta miklu máli fyrir öryggi sjófarenda í kringum landið og eru einnig hönnuð með það í huga að geta aðstoðað við björgunarverkefni á landi, s.s. með því að tryggja fjarskipti á fáförnum stöðum ef þörf krefur.
Fáheyrt að svo rausnarlegar gjafir berist til sjálfboðaliðasamtaka
„Smíði nýju skipanna er stærsta fjárfesting sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur ráðist í frá upphafi. Svona veglegur styrkur frá Sjóvá er afrakstur áratuga trausts samstarfs, og gerir okkur kleift að hefja smíði fyrstu þriggja skipanna,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Kristján bætir við að styrkurinn frá Sjóvá sé afar mikilvægur og fáheyrt að svo rausnarlegar gjafir berist til sjálfboðaliðasamtaka.
„Við viljum þakka Sjóvá fyrir þetta rausnarlega framlag. Það kom inn í verkefnið á afar mikilvægum tímapunkti og gerði það að verkum að við gátum hafið smíði á fyrsta skipinu. Við erum þakklát fyrir traustið sem Sjóvá sýndi okkur með því að leggja svo mikið fram þegar skipin voru aðeins teikningar á blaði,“ segir Kristján að lokum.
Munu gjörbylta öryggi sjófarenda á hafinu í kringum landið
„Við hjá Sjóvá erum stolt og ánægð að geta stutt Landsbjörg í þessu stóra og mikilvæga verkefni. Það er mikið gleðiefni fyrir okkur Íslendinga að fá ný björgunarskip sem munu gjörbylta öryggi sjófarenda á hafinu í kringum landið og þjónusta byggðir þess um leið. Við höfum sem aðalstyrktaraðili um áratuga skeið átt afar traust og gott samstarf við Slysavarnarfélagið Landsbjörg og er okkur því sérstakt ánægjuefni að styðja við þeirra mikilvæga starf með þessum hætti og sinna þannig um leið samfélagslegri ábyrgð okkar," segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
Hvert nýju skipanna kostar um 285 milljónir króna. Með samkomulagi sem gert var í janúar 2021 milli ríkis og Landsbjargar var tryggð allt að helmings fjármögnun þessara skipa. Slysavarnafélagið Landsbjörg hafði safnað í nýsmíðasjóð í nokkurn tíma sem tryggði enn frekar getu félagsins til að ráðast í þetta verkefni.
Nýju björgunarskipin þrjú eru smíðuð hjá KewaTec í Finnlandi. Áætluð afhending á öðru skipinu er fyrir árslok 2022 á Siglufirði. Smíði á þriðja skipinu hefst síðan í janúar 2023 og afhending á því verður eftir mitt það ár. Áfram er unnið að fjármögnun 10 björgunarskipa til viðbótar enda er það markmið Landsbjargar að endurnýja öll þrettán björgunarskip sín.