Haraldur Ingólfsson hefur tekið við stöðu útibússtjóra á Akranesi. Hann tekur við starfinu af Ólafi Grétari Ólafssyni sem starfað hefur hjá Sjóvá í 46 farsæl ár. Haraldur er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka starfsreynslu. Hann var áður aðstoðar útibússtjóri hjá Arion banka á Akranesi og síðar í Mosfellsbæ á árunum 2004-2013. Síðast starfaði Haraldur sem framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins ÍA á Akranesi.