Spurningar og svör varðandi nagladekk
- eru nagladekk öruggasti kosturinn í umferðinni?
- við hvaða aðstæður eru þau öruggari en aðrir valmöguleikar?
- Við hvaða aðstæður bregðast þau?
Svar fulltrúa Vísindavefs Háskóla Íslands er eftirfarandi:
Tæknilegir og mannlegir þættir hafa áhrif á öryggi
Ótal þættir hafa áhrif á öryggi í umferðinni, bæði tæknilegir og ekki síður mannlegir. Umferðarmannvirki eru yfirleitt hönnuð til að leiða umferðina sem um þau fer á öruggan og skilvirkan hátt. Það á við um alla vegbygginguna (burðarlög, slitlög og axlir), halla og legu vegarins, umferðarmerkingar svo og öryggismannvirki ýmiss konar, til dæmis vegrið. Ökutæki eru einnig hönnuð með tilliti til umferðaröryggis, og eru hemlar, baksýnisspeglar, öryggisbelti, loftpúðar og hjólbarðar dæmi um öryggisbúnað eða búnað þar sem öryggi skiptir miklu. Ef öllum öryggiskröfum er fullnægt og öryggistæki bifreiðar eru í lagi er það svo á valdi ökumannsins að nýta sér þennan samgöngumáta þannig að hann komist slysalaust á milli staða.
Allt að 95% óhappa má rekja til ökumanna
Slys eða óhapp getur orsakast af því að umferðarmannvirki eru ekki eins og ökumaður reiknar með, öryggistæki bifreiðar verka ekki á viðunandi hátt, eða að ökumaður vanmetur aðstæður eða sofnar á verðinum. Erlendar rannsóknir sýna að allt að 95% óhappa má rekja til ökumanna. Oft eru það þó samverkandi þættir sem valda slysum og óhöppum.
Yfirborð vegar, hjólbarðar og viðbragð ökumanns
Þegar öryggið ræðst að mestu af stöðvunarlengd eru nokkrir þættir ráðandi. Fyrst ber að nefna yfirborðið sem ekið er á. Viðnám þess getur verið mismikið eftir gerð þess, grófleika og aldri auk ytri skilyrða, svo sem hálku. Þá getur lega vegarins, til dæmis bæði halli hans og beygjur, haft áhrif á viðbrögð, svo sem hliðarskrið. Hjólbarðarnir hafa einnig áhrif á það viðnám sem næst þegar stöðva þarf ökutæki skyndilega, en um þá snúast spurningarnar hér að ofan. Þriðji veigamikli þátturinn sem ber að nefna hér eru viðbrögð ökumannsins og mat hans á aðstæðum og búnaði.
Margt bendir til að nagladekk séu einn öruggasti kosturinn
Ýmsar rannsóknir og prófanir benda til þess að ný, óslitin nagladekk séu einn öruggasti kosturinn við vissar aðstæður, þegar öryggi er mælt sem hemlunarvegalengd. Til dæmis bendir ný íslensk tilraun til þess að nagladekk þurfi styttri braut til að stöðva fólksbíl á þurrum ís en hefðbundin ónegld vetrardekk og svokölluð harðkornadekk. Sú tilraun bendir jafnframt til þess að tiltölulega ný tegund dekkja, loftbóludekk, þurfi álíka vegalengd og nagladekkin til að stöðva bílinn við þau skilyrði.
Prófun í mismunandi aðstæðum
Það skal tekið skýrt fram að þessar niðurstöður eiga eingöngu við þær aðstæður sem mælt var við, það er að segja á þurrum ís, en ekki til dæmis í snjó, á blautum ís eða í öðru hálkuástandi. Við aðrar hálkuaðstæður gætu niðurstöður orðið aðrar, en það hefur ekki verið prófað hérlendis. Á þurru malbiki og blautu malbiki í sama tilraunaverkefni kom ekki fram að nagladekk væru betri eða verri en önnur dekk sem prófuð voru. Þetta átti við þegar ekið var á 40 km/klst hraða annars vegar og 60 km/klst hraða hins vegar á bíl með ABS-hemlakerfi. Eldri íslensk rannsókn benti til þess að nagladekk kæmu lakar út en önnur dekk ef bremsum var læst á miklum hraða (120 km/klst) á blautu malbiki.
Ýmsar erlendar rannsóknir varðandi hemlunarvegalengdir liggja fyrir, en ekki er fjallað um þær hér sérstaklega. Þegar allt kemur til alls má fullyrða að auka megi öryggi í umferðinni verulega ef ökumenn halda árvekni sinni, meta aðstæður rétt og þekkja þann búnað sem þeir hafa. Í raun er tæpast hægt að segja að nein ein gerð vetrardekkja henti betur en önnur við allar aðstæður. Því er ekki hægt að fullyrða afdráttarlaust að nagladekk séu öruggasti kosturinn í umferðinni.
Aðstæður og atferli skipta máli
Við dekkjaval er best að hafa í huga aðstæður og atferli hvers og eins, það er að segja hvort fólk þarf raunverulega á negldum hjólbörðum að halda til dæmis vegna búsetu, ferða yfir heiðar að vetrarlagi og svo framvegis. Vegna augljósra aukaverkana nagladekkja, svo sem slits á vegum og götum, hávaða og rykmengunar, er æskilegt að þeir sem ekki þurfa á þeim að halda aki um á ónegldum vetrardekkjum á þeim árstíma þegar lög kveða á um notkun slíkra dekkja.
Heimildir:
Pétur Pétursson og Þórir Ingason, Tilraun með hemlunarvegalengdir mismunandi vetrardekkja. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, skýrsla nr. 01-09, Reykjavík. 2001.
Þorsteinn Jóhannsson og Þórir Ingason, Prófun á hemlunarvegalengdum, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, skýrsla nr. 92-13, Reykjavík, 1992.
Guðbjartur Sigfússon, Negldir hjólbarðar og slit á malbiki Lokaráðstefna BUSL, 6. apríl 2001, bls. 71-79, Vegagerðin, Reykjavík, 2001.