Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka glæpum og þá sérstaklega innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks. Þar sem nágrannavarsla er virk hefur skemmdarverkum einnig fækkað og dregið úr veggjakroti.
Nágrannavarsla felst í samvinnu nágranna um að gera umhverfi sitt og heimili öruggari. Með því móti er leitast við að draga úr innbrotum, þjófnaði og skemmdarverkum. Nágrannavarsla hefur verið þekkt í áratugi og hefur víða verið sett upp með góðum árangri bæði á Íslandi og víða erlendis.
Verklagsreglur
1. Íbúar þeirra gatna sem áhuga hafa á að taka þátt í nágrannavörslu í Mosfellsbæ tengilið, svokallaðan götustjóra.
Hlutverk götustjóra er:
- Að miðla upplýsingum til íbúa götunnar um verkefnið.
- Að safna upplýsingum um nöfn og netföng íbúa í þeim tilgangi að lögregla geti komið á framfæri upplýsingum til íbúa ef með þarf og að Þjónustuver Mosfellsbæjar geti komið upplýsingum um gögn vegna nágrannavörslu til íbúa.
- Að senda Þjónustuveri Mosfellsbæjar og fulltrúa lögreglunnar nafna og netfangalistann.
2. Götustjóri kemur upplýsingum til þjónustuvers Mosfellsbæjar um vilja íbúa götunnar til að taka þátt í verkefninu, ásamt upplýsingum um fjölda íbúða í götunni. Þjónustuver kemur þeim upplýsingum til Sjóvá sem lætur útbúa götuskilti, límmiða til að setja í glugga, ásamt handbók um nágrannavörslu. Sjóvá kemur þessum gögnum til þjónustuvers. Þjónustuver kallar til liðsmenn úr áhaldahúsi til að setja upp skilti við götu og sendir íbúum tölvupóst um að nálgast megi handbækur og límmiða í þjónustuver.
3. Íbúar sækja gögn frá Sjóvá handbók og límmiða í Þjónustuver Mosfellsbæjar.