Ráðgjafi á fyrirtækjasviði
Vegna aukinna verkefna auglýsum við eftir ráðgjafa í sölu- og markaðsteymi félagsins á fyrirtækjamarkaði.
Við leitum að öflugum starfsfélaga með framúrskarandi söluhæfileika og þjónustulund. Viðkomandi þarf einnig að geta sýnt frumkvæði og sjálfstæði í ákvarðanatöku. Reynsla af sölustörfum og/eða þjónustu við fyrirtæki er skilyrði auk haldgóðrar menntunar er nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af vátryggingastarfsemi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ágústa Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Sjóvá, í síma 440-2323. Umsóknir ásamt ferilsskrá skulu sendar á starfsumsokn@sjova.is, merktar "ráðgjafi" fyrir 10. febrúar nk.
Viðskiptastjóri á Húsavík
Sjóvá auglýsir eftir viðskiptastjóra í útibú félagsins á Húsavík. Helstu verkefni eru umsjón og ábyrgð á rekstri í samvinnu við útibússtjóra, sala og ráðgjöf við viðskiptavini, tjónaþjónusta og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af fjármálafyrirtækjum eða vátryggingastarfsemi er kostur
- Haldgóð tölvufærni
- Þjónustulund og söluhæfileikar
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2008.
Nánari upplýsingar veita:
Sjóvá er leiðandi félag sem leggur metnað sinn í að tryggja verðmætin í lífi fólks. Boðið er upp á gott starfsumhverfi fyrir hæft starfsfólk, ásamt tækifæri fyrir hvern og einn til að eflast og þróast í starfi.