Við þökkum hópnum fyrir að deila þessum myndum með okkur en í myndasafni Kvennahlaupsins er hægt að skoða fleiri myndir frá gönguferð þeirra.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er hlaupið víða. Við eigum langa samleið með hlaupinu en okkur rekur þó ekki minni til þess að það hafi farið fram á jökli fyrr en nú. Nokkrar galvaskar vinkonur gerðu sér lítið fyrir og fóru á Eiríksjökul á Kvennahlaupsdaginn síðastliðinn laugardag. Gengið var í 1.680 metra hæð og samtals 31 kílómetra.
Við þökkum hópnum fyrir að deila þessum myndum með okkur en í myndasafni Kvennahlaupsins er hægt að skoða fleiri myndir frá gönguferð þeirra.