Húsfylli var í húsakynnum Sjóvá þegar hraðstefnumót mentorverkefnis FKA Framtíðar fór fram í síðustu viku.
Þetta er í sjöunda skipti sem FKA Framtíð stendur fyrir verkefninu, en aldrei hafa jafn margar konur tekið þátt eða hátt í 160 talsins. Um er að ræða nokkurra mánaða verkefni sem lýkur í vor.
Mentor Verkefni FKA Framtíðar gengur út á að gefa konum í atvinnulífinu, sem hafa áhuga á að eflast og vaxa í starfi, kost á því að læra af reynslumiklum leiðtoga konum og hefja með þeim mentor samstarf. Á hraðstefnumótinu hittast allir þátttakendur og þar reyna konurnar að kynnast hver annarri á svokölluðu hraðstefnumóti. Herdís Pála Pálsdóttir, einn af eigendum Opus Futura, er verndari mentor verkefnisins í vetur. Á hraðstefnumótinu fór hún yfir fyrirkomulag mentor samstarfs með hópnum og minnti á að það eru ekki einungis þær reynsluminni sem eru að læra af sínum mentor, heldur nýtist verkefnið heldur betur vel á báða bóga.
Elín Þórunn Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri tjónaþjónustu hjá Sjóvá og Sigríður Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Sjóvá buðu konurnar velkomnar. Þær hvöttu konurnar til þess að efla tengslanetið og ræddu meðal annars um hvernig þær hafa nýtt tengslanet og speglað sig við aðra kvenkyns stjórnendur í gegnum tíðina.
“Það hafa líklega sjaldan verið jafn margar konur saman komnar á efstu hæðinni í höfuðstöðvum Sjóvá við Kringluna. Reynslumeiri konurnar sátu sem fastast í sínum sætum allan tímann og við fengum þær sem voru að sækjast eftir mentor til þess að færa sig á milli sæta eins og gengur og gerist á hraðstefnumótum. Það var eiginlega alveg ótrúlegt að upplifa orkuna í salnum á meðan að á stefnumótinu stóð! Við erum endalaust þakklátar fyrir það að Sjóvá hafi boðið okkur að halda viðburðinn hjá sér, því salurinn þeirra hentaði alveg einstaklega vel fyrir svona hraðstefnumóts fyrirkomulag”. Segir Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, formaður FKA framtíðar.