HAGNAÐUR Sjóvá samstæðunnar nam 11,9 milljörðum króna á árinu 2006 í samanburði við 3,76
milljarða árið á undan. Eigið fé nam rúmum 9,3 milljörðum í árslok 2006. Eigin iðgjöld félagsins
jukust um 10% á árinu.
fasteignum erlendis undir forystu móðurfélagsins Milestone sem tókst vel. Þungamiðja fjárfestinga
Sjóvá er þó fyrst og fremst þátttaka félagsins í öflugum íslenskum alþjóðafyrirtækjum. Viðsnúningur í tryggingastarfsemi félagsins heldur áfram. Þar munar mestu umtalsverð lækkun rekstrarkostnaðar félagsins en rekstrarkostnaður nam 2,53 milljörðum árið 2006 samanborið við 3,22 milljarða árið á undan. Samsett hlutfall félagsins, sem er rekstrarkostnaður og tjón í hlutfalli við iðgjöld, nam 114,8% en var 121,5% árið áður. Áætlanir fyrir árið 2006 um lækkun rekstrarkostnaðar náðust og er kostnaðarhlutfall félagsins að nálgast erlenda samkeppnisaðila eða um 20%.
Á árinu hafði Sjóvá forystu um ýmsar nýjungar sem eru hluti af breyttum áherslum og stefnu félagsins.
Á árinu 2006 hóf Sjóvá að bjóða tryggingaþjónustu utan Íslands og hafa mörg stærstu útrásarfyrirtæki
landsins nýtt sér hana. Þá setti félagið á laggirnar sjálfstætt dótturfélag, Sjóvá Forvarnahúsið, sem hefur vaxið umtalsvert og mun m.a. sinna slysavörnum og margvíslegu forvarnastarfi. Þá er Sjóvá
kjölfestuhluthafi í Suðurlandsvegi ehf. sem hefur að markmiði að koma af meiri þunga að uppbyggingu samgöngumannvirkja.
„Sjóvá hefur lagt á það áherslu að bæta afkomu í tryggingastarfsemi á sama tíma og félagið fetar inn á nýjar brautir sem m.a. snúa að uppbyggingu innviða, útrás og forvarnastarfsemi,“ segir Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá. „Umbreytingarnar hjá Sjóvá eru að skila árangri. Starfsfólki Sjóvá hefur tekist að draga úr kostnaði á sama tíma og ánægja með þjónustu félagsins vex. Bættur rekstur tryggingastarfseminnar leggur grunn að traustri framtíð félagsins,“ segir Karl Wernersson stjórnarformaður Sjóvá.
Nánari upplýsingar veitir Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá í síma 4402000.