Forvarnir eru besta tryggingin. Spennum bílbeltin og spennum börnin rétt í viðeigandi öryggisbúnað. Keyrum varlega í umferðinni og sýnum sérstaka aðgát í nánd við skóla. Notum haustið til að fara yfir ljósabúnað ökutækja og hjóla, finnum til endurskinsvesti og merki og verum tilbúin fyrir skammdegið.
Nú er skólastarf, íþróttastarf og frístundastarf komið á fullt skrið. Sérfræðingar í forvörnum hjá Sjóvá benda á að nú sé sól farin að lækka verulega á lofti. Þess vegna er mikilvægt að bílrúður séu hreinar og að ökumenn noti sólgleraugu og skyggni til að minnka hættu á að blindast af sólinni. Sýnum einnig fyrirhyggju og höldum nægu bili á milli bíla þegar aðstæður eru erfiðar og stillum hraðanum í hóf.