Mikið vatnsflóð flæðir niður hlíðar ofan við Siglufjarðarbæ yfir lóðir, inn í hús og niður á eyrina eins og sjá má á myndum sem fylgja þessari grein.
Tilkynningar tjóna
Bótaskylda hjá Viðlagatryggingu liggur ekki fyrir á þessari stundu. Í samráði við Viðlagatryggingu hefur verið ákveðið að allar tjónstilkynningar tengdar þessum atburði skuli senda til Viðlagatryggingar.
Hvað er vátryggt í Viðlagatryggingu?
Allar húseignir með lögboðna brunatryggingu, innbú sem er brunatryggt, sem og lausafé í fyrirtækjum og stofnunum.