- Rétt stilltur hnakkapúði dregur úr líkum á því að þú fáir hálshnykk.
- Stilltu hnakkapúðann þannig að neðsti hluti púðans nemi við eyrnasnepla og styðji þannig vel við hnakkann.
- Stillið sætið þannig að bílstjórinn sitji uppréttur, ekki of nálægt mælaborðinu eða stýrinu.
- Settu hendurnar upp á stýrið, ef úlnliðurinn er ofan á stýrinu þá er fjarlægðin góð.
- Vertu viss um að ná vel í stjórntæki í gólfi. Ef fætur eru beinir þegar stigið er í botn, þá situr þú of aftarlega.
- Í mörgum bílum er hægt að stilla hæð bílbeltis í framsætum. Bílbelti á að liggja yfir öxlina en ekki hálsinn og á mjöðmum en ekki yfir magann.
- Gott er að venja sig á að toga í beltið ef þú ert í þykkri yfirhöfn til þess að vera viss um að það liggi þétt upp að líkamanum.
- Aftanákeyrslum fjölgar á haustin. Kynntu þér hvað þú getur lagt af mörkum til að draga úr þeim.