Við höfum nú bætt kaskótrygginguna okkar gert hana enn víðtækari.
Kaskótrygging okkar bætir nú meðal annars tjón sem verður á rafhlöðu raf- eða tvinnbíla, vél eða gírkassa ef bíllinn rekst niður eða eitthvað hrekkur upp undir hann við venjulegan akstur, annars staðar en á fjallvegum, slóðum, utan vega eða yfir óbrúaðar ár.
Við erum ánægð að geta boðið upp á kaskótrygginu sem bætir þessi tjón, fyrst íslenskra tryggingafélaga.
Breytingarnar tóku gildi 23. apríl, iðgjaldið helst óbreytt og viðskiptavinir okkar þurfa ekkert að gera. Þeir greiða einfaldlega það sama áfram fyrir enn betri tryggingu.
Nánar um kaskótryggingu okkar.