Heildartekjur félagsins á árinu námu 12,3 milljörðum, þar af voru iðgjöld 10,9 milljarðar og afkoma af fjármagnsliðum 1,3 milljarðar.
Sjóvá var í söluferli á árinu 2010 sem lauk án niðurstöðu um sölu á tryggingafélaginu. Engu að síður leiddu viðræður á síðari stigum til aðkomu fjárfestingahóps sem keypti 51.4 % hlutafjár. Fyrirhuguð kaup bíða nú samþykktar FME.
Stjórn Sjóvár telur afkomu rekstrarins viðunandi miðað við núverandi aðstæður. Félagið stendur traustum fótum og horfur í rekstri eru góðar. Framundan eru spennandi verkefni á sviði fjölbreyttrar þjónustu við fjölskyldur og fyrirtæki sem velja Sjóvá sem sinn bakhjarl í tryggingamálum. Stjórn Sjóvár er þakklát fyrir það traust sem viðskiptavinir sýna félaginu.
Stjórn félagsins var endurkosin en hana skipa:
Varamenn voru kosnir:
-
Birgir Birgisson
-
Eiríkur Jóhannesson
-
Ingi Jóhann Guðmundsson
-
Ingvi Hrafn Óskarsson
-
Tómas Kristjánsson
Nánari upplýsingar gefur Lárus S. Ásgeirsson forstjóri í síma 440-2000.