Frá og með deginum í dag er enn ríkari ástæða fyrir viðskiptavini okkar að vera í Stofni. Allir viðskiptavinir með einn samræmdan gjalddaga á skírteinum sínum fá 30% afslátt af kostnaði við greiðsludreifingu. Með þessu vill Sjóvá koma á móts við trygga viðskiptavini í STOFNI og bjóða þeim ávallt bestu kjör hverju sinni.
Ef þú hefur ekki þegar kynnt þér þær greiðsluleiðir sem eru í boði þá hvetjum við þig til að skoða þær nánar hér á sjova.is. Þú getur líka haft samband við okkur í síma 440 2000, komið við í næsta útibúi eða sent okkur tölvupóst á sjova@sjova.is og við höfum samband við þig um hæl.
Þess vegna ertu hjá Sjóvá!