Hér má finna samanburð á lykiltölum úr rekstri Sjóvár undanfarin ár. Allar fjárhæðir eru í milljónum króna.
Ávöxtun eignasafnsins var 3,5% en verðbólga yfir árið var 9,9% og raunávöxtun því neikvæð um 5,8%. Í ljósi markaðsaðstæðna verður þetta að teljast ásættanlegt en vísitölur bæði hlutabréfa og skuldabréfa lækkuðu á árinu, Úrvalsvísitala hlutabéfa um 26,5%, Ríkisskuldabréfavísitala Kviku um 2,7% og Skuldabréfavísitala Kviku um 1,0%.
Fjárfestingatekjur af eignum í stýringu námu 1.698 m.kr., stærsta framlagið til þeirra var af óskráðum hlutabréfum eða 1.494 m.kr. Ávöxtun á eignasafn óskráðra hlutabréfa nam 51,7% á árinu og skýrist fyrst og fremst af virðisaukningu tveggja hlutabréfa, annars vegar Ölgerðarinnar sem var skráð í Kauphöllina um mitt ár og hins vegar Kerecis í kjölfar hlutafjárútboðs sem leitt var af stórum dönskum fjárfesti.
Afkoman af ríkisskuldabréfum var jákvæð um 198 m.kr. eða 1,4%. Í lok ársins 2021 og á árinu 2022 minnkaði Sjóvá verulega vaxtanæmni skuldabréfasafnsins með sölu á löngum bréfum og kaupum á stuttum og jók verðtryggingarhlutfallið. Önnur skuldabréf skiluðu 491 m.kr. eða 2,9% en sömu stefnu um stuttan líftíma og hátt verðtryggingarhlutfall var fylgt þar.
Afkoma af skráðum hlutabréfum var 519 m.kr. tap sem var neikvæð ávöxtun upp á 3,6% sem er mjög gott miðað við þróun markaða. Einnig þarf að hafa í huga að ávöxtun á hlutabréfum á undangengnum árum hefur verið mjög há og því varla óvænt að það komi slakt ár.
Nú lítur út fyrir að hagvöxtur hafi verið 7,1% á árinu 2022 og þensla hafi verið mikil. Verðbólga yfir árið var 9,9% og Seðlabankinn mætti því með að hækka stýrivexti um fjögur prósentustig. Gengi krónunnar veiktist um 2,6% gagnvart evru á árinu en raungengið styrktist um 3%. Ljóst er að íslenska hagkerfisins, eins og reyndar heimskerfisins alls, bíða miklar áskoranir vegna aukinnar verðbólgu á árinu 2023.
Fjárfestingarstefna og reglur um eignastýringu eru settar skv. lögum og reglum um vátryggingastarfsemi og fjárfestingarstarfsemi vátryggingafélaga. Reglunum er ætlað að styðja við og tryggja að fjárfestingar félagsins séu varfærnar og ábyrgar og að ákvarðanir um þær séu faglegar. Sett hefur verið stefna um ábyrgar fjárfestingar sem ætlað er að samþætta markmið fjárfestingarstefnu og stefnu félagsins um sjálfbærni og samfélagsábyrgð.