Árið 2021 einkenndist af sterkum vátryggingarekstri og vaxandi stofni. Á einstaklingsmarkaði jafnt og hjá fyrirtækjum hefur gengið einstaklega vel og er ljóst að framúrskarandi þjónusta og áhersla á frumkvæði í samskiptum skila okkur enn ánægðari viðskiptavinum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi var langt umfram væntingar.
Rekstur Sjóvár gekk með ágætum árið 2021. Þrátt fyrir sérstakar aðstæður í samfélaginu einkenndist árið af sterkum grunnrekstri og afkomu af fjárfestingastarfsemi langt umfram væntingar. Afkoma af rekstri félagsins nam 9.570 m.kr. og er niðurstaðan góð hvort sem litið er til vátryggingarekstrar eða fjárfestingarstarfsemi.
Í lok árs 2021 afhenti Sjóvá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu 142,5 milljóna króna styrk til smíða á þremur nýjum björgunarskipum samtakanna. Með samkomulagi sem Landsbjörg hafði gert við ríkið fyrr á árinu var tryggð allt að helmings fjármögnun skipanna en með styrknum frá Sjóvá gat smíði þeirra hafist. Afhending fyrsta skipsins er áætluð á goslokahátíð í Vestmannaeyjum sumarið 2022, en þar verður heimahöfn þess. Hin skipin tvö verða afhent síðar árið 2022 og 2023 og verða þau með heimahafnir á Siglufirði og í Reykjavík.
Með tilkomu björgunarskipanna verður bylting í viðbragðstíma og aðbúnaði fyrir áhafnir og skjólstæðinga þeirra og því um að ræða gríðarlega öryggisbót sjófarenda allt í kringum landið og samfélagið allt. Það er okkur hjá Sjóvá því mikil ánægja að geta stutt við þetta brýna verkefni samtakanna.
Sjóvá og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa í rúm 20 ár átt traust og farsælt samstarf en á árinu 2021 var endurnýjaður samstarfssamningur á milli félaganna. Samningurinn felur í sér að Sjóvá verður áfram aðalstyrktaraðili Landsbjargar næstu 5 árin. Munu félögin því áfram eiga í nánu samstarfi á sviði slysavarna og annarra forvarna og stuðla þannig í sameiningu að bættu öryggi almennings og ferðafólks um land allt.
Samstarf Sjóvár og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar er þó langt frá því að hafa takmarkast við umræddan samning í gegnum árin, eins og styrkurinn til björgunarskipanna sýnir vel. Annað gott dæmi um slíkt samvinnuverkefni er SafeTravel appið sem var gefið út á árinu 2021 en markmið þess er að auka öryggi á vegum landsins til muna. Appið er afurð trausts samstarfs Sjóvár, Landsbjargar undir merkjum Safetravel og Stokks hugbúnaðarhúss, en Sjóvá stóð undir kostnaði við þróun þess.
Í byrjun árs 2022 var tilkynnt að Sjóvá væri efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni 2021, 5. árið í röð. Íslenska ánægjuvogin mælir ánægju viðskiptavina með þjónustu og er því um að ræða viðurkenningu sem við metum mikils.
Við höfum um árabil lagt áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til einstaklinga og fyrirtækja, við sölu, ráðgjöf eða þjónustu, hvort sem hún er veitt með stafrænum lausnum eða í útibúum okkar um land allt. Við erum ánægð að sjá þessar áherslur skila sér og þakklát fyrir að viðskiptavinir okkar séu ánægðari, fimmta árið í röð. Líkt og áður lítum við á þessa viðurkenningu sem hvatningu til að gera enn betur og halda áfram að bæta þjónustuna í takt við þarfir viðskiptavina okkar.
Útgáfudagur: 10. feb 2022
Skoða ársskýrslu 2020