• Ef um alvarleg veikindi eða slys er að ræða, ráðleggjum við þér að hafa samband beint við SOS INTERNATIONAL neyðarþjónustu í síma 0045 70 10 50 50. Þjónusta SOS INTERNATIONAL felst meðal annars í því að veita ráðgjöf, eiga samskipti við sjúkrastofnanir og aðstandendur auk þess að aðstoða við heimflutning ef þess gerist þörf.
SOS INTERNATIONAL
Sími: 0045 70 10 50 50
Netfang: sos@sos.dk
Veffang: www.sos.dk
• Ef upp koma alvarleg veikindi eða slys á ferðalagi erlendis ráðleggjum við þér að hafa strax samband við SOS neyðarþjónustu í síma 0045 70 10 50 50
• Ef þú þarft að leita til sjúkrastofnunar vegna alvarlegs slyss eða veikinda erlendis þarf viðkomandi sjúkrastofnun að fá staðfest að þú sért með ferðatryggingu. SOS International s. 0045 70 10 50 50 getur staðfest ferðatrygginguna þína og ef þú ert á ferðalagi innan Evrópu getur þú framvísað Evrópska sjúkratryggingakortinu en það gildir aðeins innan opinbera sjúkratryggingakerfis EES.
• Í minniháttar tilvikum þar sem ekki er þörf á sjúkrahúsvist greiðir þú útlagðan kostnað og skilar svo kvittunum til okkar þegar heim er komið.
• Mikilvægt er að halda vel utan um öll ferðagögn eins og farseðla, kvittanir, læknisvottorð frá erlendum meðferðaraðila og önnur gögn sem tengjast atvikinu.
• Tilkynntu atvikið svo til okkar við fyrsta tækifæri eða þegar heim er komið.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með tjónstilkynningunni:
• Flugmiði eða ferðagögn
• Sjúkragögn t.d. vottorð frá lækni og/eða meðferðaraðila
• Kvittanir fyrir útlögðum kostnaði
• Lögregluskýrsla ef það á við
• Hægt er að sjá upphæð eigin áhættu á Mitt Sjóvá, á tryggingayfirliti og undir skírteini sjúkratryggingar í Ferðavernd Fjölskylduverndar.
• Komist þú ekki í fyrirhugaða ferð gætir þú átt rétt á endurgreiðslu á fyrirframgreiddum kostnaði vegna ferðarinnar.
• Byrjaðu á að tilkynna forföllin til ferðaskrifstofu eða farsala og athuga hvort þú eigir rétt á endurgreiðslu.
• Við ráðleggjum þér að tilkynna tjónið sem fyrst og láta eftirfarandi gögn fylgja með tjónstilkynningunni:
• Flugmiði eða ferðagögn
• Staðfesting á bókun frá ferðaskrifstofu eða farsala
• Kvittanir fyrir ferða-og gistikostnaði
• Læknisvottorð vegna veikinda eða slyss
• Önnur viðeigandi gögn
• Hægt er að sjá upphæð eigin áhættu á Mitt Sjóvá, á tryggingayfirliti og undir skírteini forfallatryggingar í Ferðavernd.
• Við ráðleggjum þér að tilkynna strax þjófnað eða rán til lögreglu í viðkomandi landi sem fyrst og til fararstjóra ef hægt er.
• Mikilvægt er að þú fáir afrit af lögregluskýrslum og öðrum gögnum sem tengjast málinu þar sem þau gögn þurfa að fylgja tjónstilkynningunni sem þú sendir inn til okkar við heimkomu.
• Tilkynntu tjónið svo til okkar við fyrsta tækifæri eða við heimkomu.
• Ef farangur skemmist eða týnist er mikilvægt að þú fyllir út staðfestingareyðublað á flugvellinum (PIR – Property Irregularity Report). Þegar þú tilkynnir tjónið til okkar þarf afrit af staðfestingunni að fylgja með.
• Við ráðleggjum þér að tilkynna tjónið til okkar sem fyrst.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með tjónstilkynningunni:
• Flugmiði og ferðagögn
• Staðfesting frá flugvelli (PIR eyðublað)
• Listi yfir þá muni sem skemmdust/týndust og verðmæti þeirra.
• Greiðslukvittun vegna útlagðs kostnaðar (gildir aðeins á útleið)
• Lögregluskýrsla ef um þjófnað eða rán var að ræða
• Ef þú lendir í ferðatöf vegna verkfallsaðgerða, óhagstæðra veðurskilyrða eða vélarbilunar sem seinka komu þinni á áfangastað gætir þú átt rétt á bótum úr greiðslukortatryggingu þinni.
• Við bendum þér á að hafa samband við það tryggingafélag sem tryggir greiðslukortið þitt.
• Ef þú lendir í ferðatöf vegna verkfallsaðgerða, óhagstæðra veðurskilyrða eða vélarbilunar sem seinka komu þinni á áfangastað gætir þú átt rétt á bótum úr greiðslukortatryggingu þinni.
• Við bendum þér á að hafa samband við það tryggingafélag sem tryggir greiðslukortið þitt.