Við höfum samið við Krók um sölu á tjónuðum ökutækjum
Sala á tjónuðum ökutækjum
Ökutæki sem við höfum eignast vegna tjóna eru ýmist seld á opnu uppboði eða seld partasölum til niðurrifs.
Sjóvá hefur samið við Krók um að annast uppboð á ökutækjum. Bifreiðauppboðin fara fram á uppboðsvefnum bilauppbod.is. Í flestum tilvikum eru uppboðsmunirnir staðsettir á starfsstöð Króks, Suðurhrauni 3, Garðabæ. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Krók í síma 522-4610.
Allar nánari upplýsingar á bilauppbod.is.