Tryggingaráðgjöf þegar þér hentar, þar sem þér hentar
Sjóvá hefur opnað einfaldan, rafrænan tryggingaráðgjafa sem er sérstaklega hugsaður fyrir aðila sem reka lítil og meðalstór fyrirtæki. Á aðeins 5 mínútum ættir þú að geta farið í gegnum ráðgjafann og fengið ráðgjöf sem tekur mið af þörfum þíns reksturs.
Engin skuldbinding um viðskipti er fólgin í því að nota ráðgjafann. Á grundvelli upplýsinganna sem þú veitir okkur tökum við saman tryggingapakka fyrir þig og gefum okkar besta verð í tryggingar fyrir þitt fyrirtæki.